151. löggjafarþing — 112. fundur,  11. júní 2021.

samþætting þjónustu í þágu farsældar barna .

354. mál
[11:11]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Þetta er gríðarlega mikilvægt framfaramál fyrir íslenskt samfélag, fyrir börn og þeirra framtíð. Þetta er mjög gott mál mig langar að hrósa einni manneskju sérstaklega hér inni, en það er hv. þm. Líneik Anna Sævarsdóttir sem leiddi áfram þingmannanefndina sem starfaði allt kjörtímabilið af slíkri festu og ákveðni og náði að laða saman mjög ólíka hópa inn í þessa nefnd. Samráðið í þessari vinnu allt kjörtímabilið var til þvílíkrar fyrirmyndar að ég held að við ættum öll að íhuga hvort við getum ekki öll gert eitthvað viðlíka og þarna var gert. Málið er gott. Það var örlítill ljóður þarna á lokametrunum er varðar persónuvernd en við verðum að treysta því að stjórnvöld hraði vinnslu gagnagrunns (Forseti hringir.) svo að við sköpum ekki þá hættu að viðkvæmar trúnaðarupplýsingar fari á eitthvert flug.