151. löggjafarþing — 112. fundur,  12. júní 2021.

gjaldeyrismál.

537. mál
[00:52]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta efh.- og viðskn. (Jón Steindór Valdimarsson) (V):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti 1. minni hluta efnahags- og viðskiptanefndar en með frumvarpinu sem hér liggur fyrir er ætlunin að lögfesta heimildir fyrir Seðlabanka Íslands til að grípa til víðtækra gjaldeyrishafta án aðkomu Alþingis. Ekki er um að ræða skammtímaráðstafanir heldur fyrirætlun ríkisstjórnarinnar um varanlegan framtíðargrundvöll peningamálastjórnunar í landinu á sama tíma og ábyrgðin á framkvæmdinni er færð frá löggjafanum. Fyrir liggur að ríkar heimildir til að hefta fjármagnsflæði draga úr trausti erlendra fjárfesta á íslenskum fjárfestingarkostum. Gjaldeyrishöft kunna því að vera skaðleg efnahagslífinu til lengri tíma litið og draga almennt úr hagkvæmni hagkerfisins og verðmætasköpun. Þess vegna eru þau til þess fallin að skerða samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja á alþjóðamarkaði. Að mati 1. minni hluta hefur ekki verið lagt fullnægjandi mat á neikvæð áhrif frumvarpsins á erlenda fjárfestingu eða efnahagslegan kostnað.

Í frumvarpinu er lögð til heimild til að koma á sambærilegum fjármagnshöftum og sett voru í kjölfar efnahagshrunsins árið 2008. Það tók nærri áratug að vinda ofan af þeim höftum og fylgdi þeim gífurlegur kostnaður fyrir íslenskt atvinnulíf og ríkissjóð Íslands. Í frumvarpinu felst viðurkenning á því að íslenska krónan hafi ekki burði til að sinna hlutverki sínu sem gjaldmiðill í frjálsu og opnu hagkerfi án þess að víðtæk úrræði til inngripa og hafta séu tiltæk. Neyðarúrræðin sem lagt er til að verði lögfest staðfesta þetta að mati 1. minni hluta og er veruleg hætta á því að þau verði skaðleg íslensku efnahagslífi til frambúðar. Það er á grundvelli þessara sjónarmiða, grundvallarsjónarmiða, sem 1. minni hluti getur ekki stutt frumvarpið.