151. löggjafarþing — 113. fundur,  12. júní 2021.

lýðheilsustefna.

645. mál
[13:05]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Herra forseti. Þessi listi yfir atkvæðagreiðslur fer aldeilis vel af stað, við eigum eftir að vera hér lengi. Mig langaði að gera grein fyrir atkvæði mínu, sem er á þann hátt að ég styð þetta mál. Mér þykir nefnilega, eins og mörgum, áherslur í lýðheilsumálum líklegast eitt það mikilvægasta sem við getum gert núna fyrir heilbrigði þjóðar og fyrir heilbrigðiskerfið okkar. Mér þykir að sama skapi vont hve margir umsagnaraðilar kvörtuðu undan samráðsleysi við gerð stefnunnar. Því er mætt eftir megni í vinnu nefndar í nefndaráliti með því að taka fram að það sé mikilvægt að hafa samráð við framkvæmdina en það er, líkt og þingheimur veit, töluverður munur á því að hafa samráð við stefnugerð og hafa samráð við framkvæmd. Fá mál hafa þróast meira en þekking okkar og áhersla í lýðheilsumálum og gríðarlega margir aðilar í samfélaginu þekkja, vita og kunna mikið í þessum málum, sem eru í sífelldri þróun. Við þurfum að hafa samráð um þessi mál ef við ætlum að ná árangri.