151. löggjafarþing — 113. fundur,  12. júní 2021.

gjaldeyrismál.

537. mál
[14:47]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Við erum hér sennilega að stíga eitt stærsta skref í átt að miðstýringu í mjög langan tíma. Í stað þess að velja alþjóðlega samvinnu og viðskiptafrelsi til að tryggja stöðugleika ákveður ríkisstjórnin að velja höft og um leið að binda varanlegar og mjög víðtækar haftaheimildir í lög fyrir embættismenn án þess að þau höft komi nokkurn tímann til umræðu og afgreiðslu hér í þinginu. Að mínu mati, og greinilega líka Samtaka atvinnulífsins og Viðskiptaráðs, eru þetta vond skilaboð fyrir atvinnulífið sem þarf svigrúm, ekki síst núna, til að hlaupa hraðar og vaxa hraðar til að efla efnahagslega velsæld og verðmætasköpun. Þetta er sérstaklega vont fyrir nýsköpunar- og sprotafyrirtæki og þau skilaboð sem við höfum verið að senda um að fjórða stoðin verði kjölfesta hugverka og nýsköpunar. Það er sérstaklega vont fyrir þann geira (Forseti hringir.) þegar skilaboðin eru að við ætlum hugsanlega að beita höftum hér. Þannig að þetta eru að mínu mati dapurleg skilaboð (Forseti hringir.) ríkisstjórnar til atvinnulífsins.