kosningalög.
Virðulegi forseti. Þetta er gott mál og greiðir fyrir því að vilji kjósenda nái fram að ganga. Þarna er verið að færa fjölmargt til nútímavegar og bregðast við samfélaginu eins og það er orðið. Þetta mál hefur verið unnið mjög vel í nefndinni og í mikilli sátt og vil ég sérstaklega þakka Jóni Þór Ólafssyni framsögumanni fyrir hans góðu vinnu. Við erum hins vegar í dauðafæri að laga eitt atriði sem hv. þm. Björn Leví Gunnarsson gerði grein fyrir áðan og þá er ég að tala um breytingartillögu á þskj. 1637 sem miðar að því, með einfaldri breytingu, að tryggja jafnt vægi atkvæða á milli flokka. Þetta er eiginlega bara lýðræðislegt grundvallarmál sem Alþingi Íslendinga verður að sjá sóma (Forseti hringir.) sinn í að tryggja og ég vænti þess að þingheimur styðji þessa breytingartillögu.