fjáraukalög 2021.
Virðulegi forseti. Þetta snýst um að geta brugðist við bráðavanda ríflega 30 einstaklinga sem fengu ekki svar um vist í framhaldsskóla, að eyða þeirri óvissu strax. Ég hef lesið minnisblað ráðuneytisins. Það er fínt kerfislægt svar um það hvernig þetta megi verða betra á næsta ári. Við erum að leysa vanda núna og á síðustu metrum þingsins þætti mér mikill bragur á því og mikill sómi að því að við sendum skýr skilaboð út til fólksins, einstaklinganna og fjölskyldna þeirra, um að við ætlum að taka á þessu máli núna og veita skýr svör og létta álagið sem verið hefur á síðustu dögum. Þess vegna segi ég já.