þingsköp Alþingis.
Forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991 (samkomudagur reglulegs Alþingis 2021), frá meiri hluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar. Nefndin leggur til að málið verði samþykkt óbreytt.
Óli Björn Kárason, Brynjar Níelsson, Þorsteinn Sæmundsson og Kolbeinn Óttarsson Proppé voru fjarverandi við afgreiðslu málsins en Kolbeinn Óttarsson Proppé skrifar undir álitið samkvæmt heimild í 2. mgr. 29. gr. laga um þingsköp Alþingis.
Undir álitið skrifa Jón Þór Ólafsson, formaður og framsögumaður málsins, Líneik Anna Sævarsdóttir, Þórarinn Ingi Pétursson, Guðmundur Andri Thorsson og Kolbeinn Óttarsson Proppé.