151. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júlí 2021.

starfsemi stjórnmálasamtaka.

871. mál
[11:20]
Horfa

Frsm. stjórnsk.- og eftirln. (Jón Þór Ólafsson) (P):

Herra forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um starfsemi stjórnmálasamtaka, nr. 162/2006, með síðari breytingum, listabókstafir og framlög til stjórnmálasamtaka. Málið er flutt af stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd eftir ábendingar sem við fengum eftir breytingar á lögunum í vor. Þegar ákvæði um listabókstaf var fært úr kosningalögum inn í þennan lagabálk kom ábending á síðustu stundu frá ráðuneytinu um að fresta skyldi gildistöku þess, þ.e. að það tæki gildi með lögum um stjórnmálasamtök, fram til 1. janúar á næsta ári. En það gleymdist að það þyrfti líka fresta því að ákvæðið myndi falla úr gildi úr kosningalögunum. Þetta eru mistök sem oft geta orðið við lagasetningu, vanalega er það bara leiðrétt jafnóðum eða á næsta þingi en í þetta skiptið er það ekki hægt vegna þess að ef við lögum það ekki núna þá verða engar kosningar og við getum ekki lagað þetta á næsta þingi þannig að við gerum þetta núna.

Ég fer þá yfir greinargerðina. Við þinglega meðferð frumvarps til laga um breytingu á lögum um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra, nr. 162/2006, á yfirstandandi löggjafarþingi (þskj. 1137, 668. mál) var ákvæði 38. gr. laga um kosningar til Alþingis um listabókstaf stjórnmálasamtaka fellt brott án þess að samsvarandi ákvæði í lögum um fjármál stjórnmálasamtaka tækju gildi á sama tíma. Þetta ósamræmi kom ekki í ljós fyrr en eftir að lögin höfðu verið samþykkt á Alþingi.

Við framlagningu fyrrnefnds frumvarps til laga um breytingu á lögum um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra og frumvarps til nýrra kosningalaga á Alþingi (þskj. 401, 339. mál) var gert ráð fyrir að frumvörpin tvö yrðu afgreidd samhliða og m.a. ætlunin að í stað þess að mæla fyrir um listabókstafi í kosningalögum væru slík ákvæði í lögum um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra sem eftir samþykkt fyrrnefnda frumvarpsins 13. júní 2021 heita lög um starfsemi stjórnmálasamtaka. Gildistöku nýrra kosningalaga var síðan, við þinglega meðferð, frestað fram yfir áramót en lög um starfsemi stjórnmálasamtaka áttu að taka gildi þegar í stað. Ákvæði um listabókstafi var að finna í 38. gr. laga um kosningar til Alþingis og höfðu nýlega verið gerðar breytingar á því ákvæði. Því var gildistöku hins nýja ákvæðis um listabókstafi í 2. gr. k í lögum um starfsemi stjórnmálasamtaka frestað samkvæmt breytingartillögu stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar. Samhliða þeim breytingum láðist að taka út ákvæði sama frumvarps um brottfall VIII. kafla í lögum um kosningar til Alþingis, „Listabókstafir stjórnmálasamtaka“. Því verður að óbreyttu ekkert ákvæði um listabókstafi í gildi frá gildistöku laga um breytingu á lögum um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra til 1. janúar 2022. Eigi að síður er í lögum um fjármál stjórnmálasamtaka að finna ákvæði til bráðabirgða II, sem kveður á um hvernig sækja skuli um listabókstaf fyrir komandi alþingiskosningar, en það ákvæði vísar í 2. gr. k laganna um listabókstaf sem tekur ekki gildi fyrr en 1. janúar 2022.

Þetta er aðalatriðið og ástæðan fyrir því að þingið þurfti að koma saman, eins og ég fór yfir svona á mannamáli í upphafi ræðunnar.

Enn fremur er ósamræmi milli gildistöku nýrrar 5. gr. a í lögum um fjármál stjórnmálasamtaka sem samþykkt voru 13. júní 2021, sem varðar opinberan stuðning við stjórnmálasamtök, og þeirra skilyrða sem vísað er til í greininni. Að óbreyttu tekur greinin þegar gildi en skilyrði sem vísað er til í ákvæðinu, um skráningu stjórnmálasamtaka, taka hins vegar ekki gildi fyrr en um áramót. Því er lagt til að setja inn ákvæði til bráðabirgða sem felur í sér að þrátt fyrir núgildandi skilyrði fyrir úthlutun verði ekki gerð krafa um skráningu stjórnmálasamtaka vegna ársins 2021.

Þetta er annað atriði sem er verið að bregðast við samhliða, fyrst við þurftum nú að kalla þing saman, til þess að listabókstafirnir væru í gildi þegar kosningar verða í haust.

Í frumvarpinu eru eftirfarandi lagfæringar því lagðar til. Í fyrsta lagi að ekki verði skilyrði fyrir úthlutun úr ríkissjóði og frá sveitarfélögum vegna ársins 2021 að stjórnmálasamtök hafi áður verið skráð í stjórnmálasamtakaskrá. Í öðru lagi að fellt verði brott ákvæði til bráðabirgða II í lögunum, enda er í þriðja lagi lagt til að bætt verði við lög um kosningar til Alþingis ákvæði um listabókstafi sem er sambærilegt eldra ákvæði 38. gr. þeirra laga, ásamt þeim breytingum sem gerðar voru á ákvæðinu með lögum sem samþykkt voru á Alþingi 2. júní 2021, og áður hafði verið fellt brott úr lögunum. Í samræmi við þá breytingu er jafnframt lagt til að breytt verði tilvísun til ákvæðis um listabókstafi í 32. gr. og 43. gr. laga um kosningar til Alþingis. Loks er lögð til sú breyting að frestað verði gildistöku ákvæðis til bráðabirgða III í lögunum.

Þær breytingar sem lagðar eru til á lögum um kosningar til Alþingis, nr. 24/2000, eru í eðli sínu tímabundnar í ljósi þess að með gildistöku nýrra kosningalaga 1. janúar 2022 falla lög um kosningar til Alþingis úr gildi. Því er ekki nauðsynlegt að marka ákvæði 37. gr. a síðarnefndu laganna, samanber b-lið 5. gr. frumvarps þessa, gildistíma fram að áramótum. Samkvæmt gildistökuákvæði kosningalaga fer um áformaðar alþingiskosningar haustið 2021, svo og um frestun og uppkosningar vegna þeirra, kosningakærur og úrskurð Alþingis um gildi kosninga, samkvæmt lögum um kosningar til Alþingis, nr. 24/2000.

Þetta er það sem málið snýst um. Þetta þýðir að það sem átti að vera inni, listabókstafirnir, sem voru færðir úr kosningalögum yfir í lög um stjórnmálasamtök, verða virkir í haust. Þetta er allt sett til bráðabirgða af því að þessar breytingar eru annars vegar við lög um stjórnmálasamtök en það fellur ekki alveg úr gildi í kosningalögunum sem enn eru í gildi af því að heildarendurskoðun kosningalaga sem við vorum að gera í vor tekur gildi eftir áramótin. Þessar breytingar þýða að við getum haft kosningar í haust og það verður samfella í lögunum þegar skiptin verða og við förum yfir í heildarendurskoðuðu lögin, sem taka gildi strax á nýju ári.

Ég legg til, þar sem nefndin flytur málið og það þarf ekki að ganga aftur til nefndar, að málið gangi til 2. umr.