rannsókn kjörbréfa.
Forseti. Við lestur greinargerðar kjörbréfanefndar má ráða að vinnan hafi verið hvort tveggja ítarleg og vönduð. Fyrir vikið eru það nokkur vonbrigði að sjá nefndina vísa nær öllum kærum og umkvörtunum frá, jafnvel þó að þær varði mikla og augljósa annmarka á framkvæmd kosninganna í Norðvesturkjördæmi sem og kvartanir sem varða jafnvel refsiákvæði kosningalaga. Hæpið verður að teljast að 3. mgr. 120. gr. kosningalaga nýtist við úrlausn kvartana sem varða háttsemi kjörstjórna á grundvelli ákvæðis sem varðar ágalla um kosningu þingmanns, líkt og 120. gr. kosningalaga fjallar um. Hvað svo sem manni kann að finnast um ágæti þess að þingmenn fjalli um eigið kjör get ég ekki séð að ákvæði kosningalaga geti bundið hendur Alþingis til að úrskurða um gildi kosninga samkvæmt stjórnarskrá.
Hvað varðar þann skilning að við uppkosningu skuli kosning endurtekin með sömu listum á kjörskrá er sú túlkun nokkuð furðuleg í ljósi þess að væru á kosningunni gallar sem leiða til ógildingar má leiða líkur að því að sé ekki leyst úr þeim yrðu sömu gallar á nýju kosningunni. Enn fremur er ótækt að kjörskrá sé ekki uppfærð og borgurum með kosningarrétt yrði meinað að kjósa.
Af lestri greinargerðar kjörbréfanefndar má ráða að allar líkur eru á því að niðurstaðan verði að hvorki verði farið í uppkosningu í öllum kjördæmum né uppkosningu í Norðvesturkjördæmi.
Þá ber að líta til þess að nær allir annmarkar sem á fyrri talningunni eru, eru einnig á seinni talningunni. Þar er þó ekki tekið tillit til þeirrar staðreyndar að marga ágalla og annmarka sem eru á seinni talningunni er ekki að finna á fyrri talningunni. Alvarlegasti annmarkinn, gallar á meðferð og vörslu kjörgagna, á ekki við fyrri talninguna. Ágallar er varða viðveru umboðsmanna eiga heldur ekki við fyrri talninguna. Það ber jafnframt að líta til þess að af lestri kosningalaga má ráða að bókun um lokatölur í gerðabók ljúki talningu og engin ákvæði kosningalaga heimila yfirkjörstjórn að endurtaka talningu að eigin frumkvæði. Enn fremur er ekki hægt að útiloka, þrátt fyrir útskýringar, að átt hafi verið við kjörgögnin milli fyrri og seinni talningar. Þegar allt þetta er tekið til er óhjákvæmileg sú niðurstaða að ekki hefði átt að gefa út kjörbréf miðað við seinni talninguna heldur þá talningu sem á eru mun færri gallar og var færð í gerðabók að lokinni talningu í viðurvist umboðsmanna og almennings.
Af þessum sökum hef ég lagt til breytingartillögu við nefndarálit meiri hlutans þess efnis að vísa því til landskjörstjórnar að gefin verði út kjörbréf miðað við fyrri tölur eins og þær eru bókaðar í gerðabók.
Forseti. Það lýðræðislegasta í stöðunni væri eflaust að boða til uppkosninga í öllum kjördæmum og byrja upp á nýtt með hreinan skjöld, en geri Alþingi það ekki finnst mér það skylda Alþingis að taka afstöðu til þess hvora talninguna það telur hafa verið í samræmi við lög, þá fyrri eða seinni.