152. löggjafarþing — 3. fundur,  2. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[16:35]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ef ég byrja á að klára aðeins fyrra svar þá gleymdi ég að nefna að það sem mér finnst helst einkenna þessar breytingar eru breytt starfsheiti sem virðast miða að því að búa til umbúðir sem henta tíðarandanum og menn hafi einfaldlega gleymt að huga að innihaldinu. En það er gegnumgangandi í pólitík þessarar ríkisstjórnar og þar af leiðandi lýsandi.

Varðandi loftslags- og orkumálin þá verð ég eiginlega að viðurkenna það, frú forseti, þrátt fyrir allt sem ég sagði hérna áðan, að á Íslandi er ekkert endilega úr vegi að orku-, loftslags- og umhverfismál séu saman í ráðuneyti, því að hvert er helsta framlag okkar til loftslagsmála á heimsvísu og umhverfismála þar með? Það er að nýta endurnýjanlega orkugjafa. Ég vona bara að nýr ráðherra málaflokksins muni nálgast það með þeim hætti að það sé í rauninni skylda okkar Íslendinga að nýta þá umhverfisvænu orku sem við höfum í þessu landi til þess að framleiða umhverfisvænar vörur.