fjárlög 2022.
Virðulegur forseti. Auðvitað er ég sammála hv. þm. Guðmundi Inga Kristinssyni að það er holur hljómur í því að heyra ráðherrana hæla sér af þessu 1%, ráðherra sem hafa þegið launahækkanir á launahækkanir ofan þann tíma sem ég hef verið á þingi. Byrjuðu með 44% hækkun strax 2016 og svo hefur þetta bara farið hækkandi síðan. Það er eins og það sé engin raunveruleikatenging í því hversu mikið laun ráðherra og þingmanna hafa hækkað og hversu skammarlega langt niðri tekjum örorkulífeyrisþega og lífeyrisþega hefur verið haldið. Það er eins og þau tilheyri einhverri allt annarri þjóð en þau gera, þau geta ekki séð tenginguna þarna á milli. Því er nú verr og miður. Það er bara mjög sárt að horfa upp á akkúrat þennan hóp endurtaka leikinn. Við verðum að veita þeim virkt aðhald, hv. þingmaður.