fjárlög 2022.
utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S) (andsvar):
Herra forseti. Ég hef fagnað mjög aukinni samvinnu við félagasamtök þegar kemur að þessari vinnu almennt og ég er að sjálfsögðu reiðubúin til að bæta enn frekar slíkt samstarf og skoða leiðir til að setja aukinn hlut fjármagns í gegnum slíka vinnu. UN Women og Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna vinna auðvitað framúrskarandi starf og ég tek undir með hv. þingmanni að það er líklegra til árangurs, við getum í raun náð meiri árangri en kannski stærð okkar eða fjármagn segir til um með því að hafa skýran fókus og byggja á þeim styrkleikum sem við höfum. En hvort og þá hvernig aukið verður sérstaklega í það verður aðeins að koma í ljós. Sömuleiðis mun ég vilja setjast niður með öllum þessum félagasamtökum og fá það einfaldlega beint í æð og ná samtali við þau um hvernig við getum aukið enn frekar samvinnuna vegna þess að þetta er eitt af því jákvæða sem við erum öll sammála um og viljum gera betur og erum öll sammála um hversu mikilvægu starfi þessi félagasamtök sinna og við viljum öll styðja enn frekar við það.