152. löggjafarþing — 9. fundur,  13. des. 2021.

um fundarstjórn.

[15:05]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Herra forseti. Þinginu er ansi þröngur stakkur sniðinn hér fyrir jól vegna þess að sögulega langan tíma tók að mynda ríkisstjórn. Þess vegna hljótum við að velta fyrir okkur öllum dagsetningum á öllum málum sem til afgreiðslu koma og ég vil sérstaklega vekja athygli á 12. dagskrármáli dagsins, svokölluðu Mílufrumvarpi. Það var í september á síðasta ári sem fréttir bárust af því að Síminn hefði fengið fyrirspurnir frá fjárfestum um kaup á Mílu. Það var í apríl á þessu ári sem Sýn seldi óvirka innviði. Það var í júlí á þessu ári sem fjöldi fjárfesta var sagður undirbúa kauptilboð í Mílu. Af hverju var síðasti vetur ekki notaður til að gera þetta frumvarp að lögum? Síðan var fundað um söluna á Mílu í þjóðaröryggisráði 11. nóvember, fyrir mánuði, herra forseti. Fyrir heilum mánuði fundaði þjóðaröryggisráð um þetta frumvarp, sem skiptir miklu máli að ljúka fyrir jól. Og ekki bara fyrir jól, heldur fyrir helgi. Fyrir næstu helgi þarf þingið að vera búið að klára mál sem var dreift 10. desember. Við höfum tæpa viku til að klára mál sem ríkisstjórnin, og sú sem hún var fyrir kosningar, er búin að hafa í fanginu í heilt ár.

Herra forseti. Þetta er ólíðandi. (Gripið fram í: Heyr, heyr. )