152. löggjafarþing — 15. fundur,  22. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[00:42]
Horfa

Forseti (Líneik Anna Sævarsdóttir):

Forseti vill á þessum tímapunkti upplýsa að þegar forseti kom hér í forsetastól fyrir einhverjum mínútum síðan var henni ekki kunnugt um annað en að enn væri í gangi ákveðið samtal á milli þingflokksformanna um það hvernig mögulega mætti ljúka þessu þinghaldi fyrir jólin. Á meðan forseti fær ekki upplýsingar um að því samtali sé lokið eða nýjar fréttir af því samtali hyggst hún halda þessum fundi áfram.