152. löggjafarþing — 15. fundur,  22. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[01:41]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta fjárln. (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Jú, það er hárrétt, þar þurfa fleiri að koma að, það er alveg klárt mál. Og það þarf líka, eins og er fyrirhugað varðandi iðnaðarráðuneytið, að einfalda skipulagsmálin og einfalda alla ferlana við uppbyggingu á húsnæði og raunverulega innviðum líka. En ríkisvaldið er bara svo stór aðili að það er það sem myndi drífa þetta áfram. Sveitarfélög á Íslandi eru reyndar mjög sérstök. Við erum með eitt risasveitarfélag hérna og stór sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu og eitt stórt á Akureyri og svo eru þetta mjög lítil sveitarfélög úti um land. En ríkið er einfaldlega það stór aðili að það verður að hafa frumkvæði og forystu í þessum málum. Það á að koma með lagabreytingar sem til þarf til að auka hraðann í framleiðslu á húsnæði. Við leggjum til í þessari tillögu að fjárheimild til málefnasviðs 31.10 hækki um 3,5 milljarða kr. til að tvöfalda stofnframlag ríkisins vegna almennra íbúða. Við erum að tala um að ríkið myndi tvöfalda framlag sem þarna er og það ætti að skila sér í auknu framboði á húsnæði eftir ákveðinn tíma.