152. löggjafarþing — 15. fundur,  22. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[03:06]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Björn Leví Gunnarsson) (P) (andsvar):

Forseti. Já, það er sama vandamálið við þetta hvort tveggja. Það er spá um launaþróun eða verðbólgu fyrir næsta ár. Það er alltaf vanmat, kerfisbundið vanmat. Þá veltir maður fyrir sér: Hver ákveður að taka ekki tillit til sögunnar? Af hverju er ekki sagt: Við erum alltaf að vanmeta þetta, við skulum laga það og spá aðeins meiru næst til að vera nær meðaltali þess sem gengur og gerist af því að spáin er alltaf undir meðaltalinu. Manni líður pínulítið eins og þetta sé ákvörðun sem er tekin, ákvörðun um að vanspá til að vera örugglega ekki yfir. Er það þá í rauninni ekki pólitísk ákvörðun ef maður pælir í því? Þá er þetta pólitísk ákvörðun um að láta þessa kjaragliðnun gerast, af því að það er ekki lagað eftir á. En nú er búið að viðurkenna það varðandi verðlagsþróunina, ekki launaþróunina.