152. löggjafarþing — 21. fundur,  17. jan. 2022.

staðgreiðsla opinberra gjalda o.fl.

210. mál
[22:46]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Guðrún Hafsteinsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hv. þingmaður. Takk fyrir fyrirspurnina. Bara svo það sé alveg skýrt, ég taldi mig hafa tekið það fram hér í fyrra svari mínu, þá hefðum við öll kosið að það hefði verið lengri tími. Hann höfum við ekki. Og fyrirtækin okkar, sem blæðir þarna úti, hafa heldur engan tíma og við erum sömuleiðis að taka tillit til þess.

Hvort þessi aðgerð skili tilætluðum árangri? Ég bind vonir við það. Eins og ég sagði áðan er það vilji okkar að veita súrefni til þessara fyrirtækja. Þetta eru þau fyrirtæki, eins og sagði bæði í frumvarpinu og í nefndarálitinu, þetta eru veitingastaðir, þetta eru skemmtistaðir, og jú, í flokki IV eru t.d. hótel og gististaðir sem eru með veitingarekstur með vínveitingaleyfi eða vínveitingaleyfi og mat. Við vitum dæmi um fjölda slíkra hótela hringinn í kringum landið sem orðið hafa fyrir mjög þungu höggi og urðu fyrir þungu höggi vegna þeirra sóttvarnatakmarkana sem farið var í hér í aðdraganda aðventu og á aðventunni þar sem mörg félög þurftu beinlínis að skella í lás. Ég bind vonir við það að með þessari aðgerð séum við að kasta líflínu til þessara fyrirtækja, koma þeim í gegnum skaflinn sem þau eru búin að vera í núna í tvö ár þannig að þau geti lifað og haldið áfram að þjónusta okkur Íslendinga sem og alla okkar gesti sem sækja landið heim.