staðgreiðsla opinberra gjalda o.fl.
Virðulegi forseti. Í dag er 17. janúar og eindagi á frestaðri staðgreiðslu skatta og gjalda. Það er ekki fyrr en í dag sem þetta frumvarp er tekið fyrir á Alþingi. Það hefur ekki gefist tími til nægjanlegs samráðs við hagsmunaaðila og það voru ekki sendar út umsagnarbeiðnir. Þetta er afgreitt á harðahlaupum, handahlaupum jafnvel, getum við sagt. Þetta er vissulega krísustjórnun, eins og hv. þingmaður kallaði það áðan, en þetta er ekki góð krísustjórnun. Við vissum fyrir löngu, fyrir mörgum vikum, að staðan er ofboðslega þung í þessum geira atvinnulífsins. Hér hefur verið vitnað til orða fjármálaráðherra sem sagði einmitt þann 10. desember að það þyrfti að hafa hraðar hendur. Það þyrfti að sjá til þess að sértæk úrræði yrðu áfram í gildi gagnvart veitingageiranum. Hvað gerðist svo? Jú, fyrri úrræði runnu úr gildi og Alþingi fór heim án þess að það hefðu verið kynntar neinar útfærðar aðgerðir fyrir þennan geira. Það er langt síðan kallað var eftir þessari frestun á staðgreiðslu og algerlega óskiljanlegt að málið hafi ekki komið inn fyrr. Það er líka leiðinlegt að hæstv. fjármálaráðherra sé fjarverandi þegar þetta mál er tekið til umfjöllunar á Alþingi. Þetta frumvarp er það eina sem kemur fram fimm vikum eftir þessar miklu yfirlýsingar hans um aðgerðir fyrir veitingageiranum, en samt virtist það ekki fullunnið vegna þess að það þurfti að breyta því heilmikið núna í meðförum nefndarinnar, fjármálaráðuneytið taldi í rauninni á endanum að það þyrfti að gera talsverðar breytingar á málinu þannig að þetta er bara ofboðslega vont.
En þetta er mikilvægt mál og mikilvægt að afgreiða það núna sem allra fyrst. Ég og fleiri fulltrúar í minni hlutanum, hluti minni hlutans, ritum undir nefndarálit með fyrirvara vegna þessarar hröðu málsmeðferðar og vegna ófullnægjandi samráðs við hagsmunaaðila. Við styðjum þó frumvarpið. En svona getum við ekki unnið. Núna erum við búin að vera að glíma við þennan heimsfaraldur í tvö ár, það er gripið reglulega til sóttvarnaráðstafana og svo er þeim aflétt og svo er gripið aftur til þeirra og hert. Við þurfum að fara að læra aðeins betur inn á þetta. Það verður að gera þá kröfu til stjórnvalda t.d. að efnahagsaðgerðir séu kynntar um leið og hertar sóttvarnaráðstafanir eru kynntar. Ég held líka að við hér á þinginu verðum að taka okkur miklu stærra hlutverk í þessari sóttvarnaumræðu allri og vinna þá kannski efnahagsúrræði lengra fram í tímann og gera áætlanir, teikna upp sviðsmyndir eins og er gert á sóttvarnahliðinni. Ég held að við ættum að gera það sama á efnahagsmálahliðinni og vera þá tilbúin með pakka þegar þess þarf. Ég ætla ekki að hafa þetta lengra.