úttekt á tryggingavernd í kjölfar náttúruhamfara.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni fyrir andsvarið og fínar vangaveltur og ábendingar. En ég held einmitt að kosturinn við það að tillagan sé lögð fyrir þingið í formi þingsályktunartillögu sé að það kallar á ábendingar, formlegar og óformlegar, til þingsins í umsagnarferlinu. Eins og fram kom var tillagan fyrst lögð fram í júní síðastliðnum og uppskar hún fullt af góðum ábendingum. Þannig að það er m.a. það sem vinnst við að fara þessa leið að mínu áliti, og svo að koma tillögunni á dagskrá þýðir að hún fer væntanlega til umsagnar á næstu dögum og kallar þá á ábendingar og athugasemdir sem geta bætt hana. Auðvitað má svo á hverjum tíma velta fyrir sér hvort skýrslubeiðni eða fyrirspurnir geti svo bætt einhverju við í leiðinni. En um leið og ég fór að skoða þessi mál kom í ljós mjög fljótt, eins og upptalningin þar sem ég fór yfir gráu svæðin gefur til kynna, ábendingar sem komu fyrst og fremst frá Seyðisfirði, að verkefnið er með ótal anga og það eru margir sem þurfa að koma að því að draga saman upplýsingar ef þær eiga að vera tæmandi. Ég hef fengið ýmsar ábendingar frá öðrum stöðum á landinu um það sem betur má fara og um þessi óljósu mörk í úrlausn verkefna.