gögn frá Útlendingastofnun.
Virðulegi forseti. Útlendingastofnun starfar samkvæmt lögum sem Alþingi setur, starfar í umboði Alþingis. Ef Útlendingastofnun fylgir ekki lögum og viðurkenndu verklagi heyrir það upp á hæstv. dómsmálaráðherra, Jón Gunnarsson, að bregðast við. Hann hefur yfirstjórnunar- og eftirlitsskyldur gagnvart Útlendingastofnun. Ég er feginn að heyra þingmenn Vinstri grænna taka undir þessa sjálfsögðu kröfu og myndi gjarnan vilja heyra sams konar málflutning frá þingmönnum Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins.