152. löggjafarþing — 27. fundur,  26. jan. 2022.

störf þingsins.

[15:01]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf):

Herra forseti. Ég vil ræða störf þingsins og með hvaða hætti við gætum bætt okkur í þeim efnum og þá fyrst og fremst á tæknilega sviðinu. Ég hefði talið að þegar margir þeirra sem hér koma í pontu eru með skrifaðar ræður, sérstaklega þegar við erum í beinni útsendingu sem þjóðin getur fylgst með, og gerir kannski meira en okkur grunar, væri meiri myndarbragur yfir því ef menn gætu horft upp úr ræðunni, ef það væri einhvers konar „prompter“ eða skjár t.d. hér beint á móti þar sem menn gætu lesið af tölvunni, af slíkum skjá, og horfst í augu við þjóð sína á meðan þeir flytja mál sitt, og vonandi með enn meira sannfærandi hætti. Þetta þekkja allir sem hafa verið í útsendingum í sjónvarpi eða á ráðstefnum. Þetta er svona tiltölulega viðtekinn nútímalegur máti. Og þá sömuleiðis ef menn vilja leggja sérstaka áherslu á mál sitt og gera það með myndarbrag, að geta gripið til stoðtækja á borð við skjá á vegg tengdan við tölvu, með áhersluatriðum í máli og myndum. Þetta get ég fullyrt af eigin raun að hefur gert ræður margra eftirminnilegri, skýrari og skemmtilegri. Og að lokum, vegna þess að hér erum við í beinni sjónvarpsútsendingu, þó að ýmsir hafi kannski stolist til þess að fylgjast með einhverju öðru en Alþingi akkúrat á þessum tímapunkti landsleiksins, þá myndi ég leggja til að við fjölguðum útsendingarvinklum og gerðum útsendinguna þeim mun skemmtilegri fyrir þá sem horfa.