störf þingsins.
Forseti. Ég vil byrja á að taka það fram að ég er ekki að horfa á leikinn. Mér finnst áhugavert að handboltaleikur hafi áhrif á atkvæðagreiðslur á Alþingi, en allt í lagi. Mig langar til að fjalla aðeins um störf þingsins eins og hv. þm. Jakob Frímann Magnússon gerði hér áðan, en út frá öðru sjónarhorni. Það virðist vera mikill misskilningur hjá fólki almennt að þegar talað er um minni hluta og meiri hluta, sem er vissulega ákveðin staðreynd að eru hér á þingi, þá er það samt ekki satt. Hér eru flokkar sem taka sér dagskrárvald og flokkar sem hafa bara aðgang að ræðustól þingsins. Það snýst ekki um meiri hluta og minni hluta því að í raun skipta atkvæði minni hlutans engu máli. Það er dagskrárstjórnunin, dagskrárvaldið, sem skiptir öllu máli. Þetta er 100% gegn 0%, ekki meiri hluti og minni hluti.
Ég segi þetta með það í huga að hér er verið að reyna að breyta skipulagi þingvikunnar, t.d. út af styttingu vinnuviku og ýmsu svoleiðis. Nú er staðan þannig að það eru þingfundir til kl. 8 flesta daga. Ekki á föstudögum, en þeir geta staðið til miðnættis á þriðjudögum. Það er alveg gríðarlega óhagkvæmt umhverfi til að vinna í upp á vinnuskorpur og ýmislegt slíkt í staðinn fyrir að meira jafnvægi væri í þessu daginn út og inn og árið fram og til baka.
Mig langar til að beina því til þingmanna að þeir hugsi á komandi vikum, þegar við erum að reyna að koma saman starfsáætlun þingsins, um hið innra skipulag vikunnar og ójafnvægið á milli þeirra sem taka sér dagskrárvaldið og hinna sem þurfa að reyna að vinna innan þeirrar kúgunar, að því er mér finnst. Ef einhverjir taka sér meirihlutavaldið, taka sér 100% dagskrárvald, þá er það þeirra að byrja að vera málefnalegir.