störf þingsins.
Virðulegur forseti. Fram kemur í nýlegri frétt að aldrei hafi fleiri Íslendingar leyst út jafn margar tegundir ávanabindandi lyfja og á síðasta ári. Þar kemur einnig fram að almenningur hér á landi notar sömuleiðis mun meira af sterkum verkja-, tauga- og geðlyfjum en fólk annars staðar á Norðurlöndum. Það hefur komið fram að ópíumfaraldur af völdum verkjalyfja geisi hér út um allt. Hvers vegna? Jú, vegna þess að þúsundir veiks fólks eru á biðlista eftir lífsnauðsynlegum aðgerðum á mjöðm, hnjám eða öðrum bæklunaraðgerðum. Þess vegna er inntaka á ávanabindandi lyfjum alltaf að aukast og aukast. Já, vegna þess að fólk er óvinnufært og rúmfast með verki en á biðlista svo árum skiptir. Því er neitað um þjónustu hér á landi en má fara til útlanda í þrefalt dýrari aðgerð. Sérfræðingar í einkarekstri eru kallaðir inn á LSH vegna Covid-krísunnar til hjálpar en þeir mega ekki hjálpa þremur á biðlista fyrir þann kostnað sem hlýst af einum sem fer til útlanda. Andlátum af völdum þessara lyfja heldur áfram að fjölga. Hvað eru margir að verða fyrir skaða vegna notkunar á sterkum verkjalyfjum svo mánuðum eða árum skiptir? Hvað eru margir á biðlistafæribandinu sem færir viðkomandi hægt og bítandi í fíkn, skaða eða bara beint í örorku? Stöðvum biðlistafæribandið og sjáum til þess að þeir sem þurfa á lífsnauðsynlegri aðgerð að halda fái hana strax. Að skaða veikt fólk með óþarfa inntöku á skaðandi ópíóíðum, jafnvel svo árum skiptir, á heimatilbúnum biðlista er fáránlegt og okkur öllum hér inni til háborinnar skammar. 3.000 Íslendingar voru að fá ávísun á ávanabindandi lyf. Hversu margir voru í krabbameinsmeðferð? Hversu margir eru að taka slík lyf að óþörfu vegna þess að þeim er haldið á biðlista?