störf þingsins.
Virðulegi forseti. Við erum í kunnuglegri stöðu. Þrátt fyrir jákvæð merki um þróun faraldursins grípa stjórnvöld enn á ný til umfangsmikilla aðgerða fyrir einstaklinga og fyrir rekstraraðila. Sú stefna var mótuð strax í upphafi að styðja þá sem verða fyrir verulegu tjóni vegna sóttvarnatakmarkana stjórnvalda. Sértæk efnahagsúrræði stjórnvalda hafa m.a. falist í hlutabótaleið, viðspyrnustyrkjum, greiðslu á uppsagnarfresti og stuðningslánum. Efnahagsaðgerðir íslenskra stjórnvalda hafa verið vel tímasettar og heppnast þannig að eftir hefur verið tekið á alþjóðavettvangi. Á meðan efnahagsleg farsótt geisar áfram verður horft til þess á hvaða sviðum þörf er fyrir stuðning. En sóttvarnaaðgerðir hafa ekki fylgt sömu uppskrift. Heilbrigðisyfirvöld hafa ekki beðið boðanna við að herða takmarkanir og jafnvel hert þær verulega á milli ríkisstjórnarfunda í sömu viku. Þegar kemur að því að aflétta þeim, með hið margyfirlýsta markmið að við förum að lifa með Covid og endurheimtum eðlilegt líf í huga, vilja stjórnvöld flýta sér hægt. Því búum við enn um sinn við gífurlega harðar sóttvarnaaðgerðir þrátt fyrir að tilkynnt hafi verið um ýmiss konar afléttingar. Af nógu er að taka. Samkvæmt lögum er stjórnvöldum einungis heimilt að beita sóttvarnaaðgerðum þegar skilgreind hætta er til staðar af sjúkdómi og skilyrði að um sé að ræða ógn við almannaheill. Hafi ekki verið ljóst fyrir nokkru síðan að sú ógn væri ekki til staðar má öllum vera ljóst að sá tími er upprunninn. Margir af okkar sérfræðingum og heilbrigðisstarfsmönnum hafa nú þegar bent á það. Stjórnvöldum ber því lagaskylda til frekari afléttinga á takmörkunum hvað sem áætlunum og stjórnsýslu líður. Fólk og fyrirtæki í landinu geta ekki búið áfram við aðgerðir og takmarkanir sem ekki er stoð fyrir í lögum.