152. löggjafarþing — 27. fundur,  26. jan. 2022.

störf þingsins.

[15:17]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Virðulegi forseti. Sjötta dagskrármál Alþingis í dag er mál þar sem ég mæli fyrir, ekki í fyrsta skipti en vonandi það síðasta, 350.000 kr. lágmarksframfærslu, skatta- og skerðingarlaust, fyrir almannatryggingaþega sem hafa hingað til verið hnepptir í rammgerða fátæktargildru. Það er ekki langt síðan við vorum í kosningabaráttu og þar kom fram skýr vilji allra þeirra sem voru málsvarar fyrir sína stjórnmálaflokka um að endurskoða þyrfti kerfið og það væri ekki til eftirbreytni hvernig við höfum komið fram við tugþúsundir Íslendinga með því að halda þeim í fátækt. Ég vil bara ítreka það og minna á að nú er tækifærið. Hér á að endurskoða almannatryggingakerfið frá grunni og er það vel. Ég veit náttúrlega ekkert hvernig þeirri vinnu vindur fram enda ekki langt síðan þetta nýja þing hóf störf. Fyrir jólin var algerlega ljóst að þúsundir og aftur þúsundir stóðu í löngum röðum til að biðja um mat til að geta að minnsta kosti haft almennilega jólasteik á borðinu sínu. Það breytir ekki þeirri staðreynd að 53.000 kr. voru settar til öryrkja og það gengi ekki upp — þó að maður sé ekki þannig gerður að vera hér að hæla ríkisstjórnarflokkunum þá verðum við að vera sanngjörn. Við höfðum hátt. Við kölluðum eftir því að þessu yrði breytt og ekki bara þessum þjóðfélagshópi yrði hjálpað heldur líka eldra fólki í neðstu þremur tekjutíundunum. Skrefið var stigið til hálfs og öryrkjar fengu þennan jólabónus upp á 53.000 kr., skatta- og skerðingarlaust. Við sýndum að það er hægt að vinna saman. Við sýndum að með því að kalla hátt og með því að vera fylgin okkur þá er ekki hægt annað en að hlusta á okkur. Það hlýtur því að vera gert núna, við verðum að fara að trúa því. Dropinn holar steininn og 350.000 kr., skatta- og skerðingarlaust, þær verða að veruleika innan skamms. Það er mín bjargfasta trú.