152. löggjafarþing — 37. fundur,  10. feb. 2022.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

332. mál
[14:12]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Það er alveg rétt að þetta stóra verkefni krefst þess að við, samfélagið allt, stjórnvöld, fyrirtæki, starfi eftir langtímaáætlunum sem halda og hafa skýr markmið. Auðvitað er markmiðið orkuskipti, að sjálfsögðu, en markmiðið hlýtur líka að vera hvers vegna við erum að nýta þessa mjög svo verðmætu orku og í hvað hún á að fara og hvernig atvinnulíf við viljum byggja upp. Í þessu þurfum við áætlanir eins og hv. þm. Kári Gautason nefndi hér fyrr í dag. Það þarf áætlun til fimm ára, 10 ára, 20–25 ára, þannig að við vitum hvert við erum að fara og best væri ef við næðum saman um þær áætlanir. Þannig að í rauninni skipti það minnstu máli hvaða flokkar færu saman í ríkisstjórn ef þeir væru sammála um að vinna að sömu langtímamarkmiðum af því að á endanum er það þessu samfélagi til heilla.