stjórn fiskveiða.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Höldum okkur við íslensku krónuna. Ég er með aðra spurningu. Það er mjög mikilvægt að þetta ákvæði komi inn í stjórnarskrána og afleiðingarnar geta verið lagaáskilnaðarregla og annað slíkt að sjálfsögðu sem kemur inn. En ég tók eftir því í ræðu hv. þingmanns að hún er fylgjandi kvótakerfinu. Nú er árangurinn af kvótakerfinu enginn. Árið 1983 veiddum við 220.000 tonn. Í dag eru sett á 220.000 tonn, hvort það eru 220.417 tonn. Meðaltal í kvótakerfinu frá 1984–2021 er 219.000 tonn af þorski. Fyrir kvótakerfið, 1960–1983, voru það 287.000 tonn og það var án Bretanna, ég tek það fram. Við vorum að veiða miklu meira þá þannig að árangurinn er enginn. Það væri gott að heyra álit hv. þingmanns á því. Til hvers að vera fylgjandi kvótakerfi sem skilar ekki þeim árangri sem ætlast er til? Og annað: Er hún fylgjandi frjálsum strandveiðum, sem munu þá vera veiðar utan kvóta, og telur hún þær fiskveiðar, sem sagt frjálsar handfæraveiðar, ógna fiskstofnum við Ísland og hvernig þá? Það væri gott að fá að heyra afstöðu hv. þingmanns til frjálsra strandveiða sem ég tel mjög mikilvægt að verði leyfðar sem allra fyrst. Þetta er búseturéttur. Þetta eru réttindi landsbyggðarinnar, þetta er atvinnufrelsi og hrein og klár mannréttindi.