152. löggjafarþing — 40. fundur,  23. feb. 2022.

fjármálastefna 2022--2026.

2. mál
[16:28]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Við erum með ósjálfbæra fjármálastefnu. Þetta er stefna til að reyna að laga það og ná afkomunni niður í núll. Það þýðir, samkvæmt þessari fjármálastefnu, 120 milljarða í minnkuð útgjöld. Það er ýmislegt sem gerist sjálfkrafa eins og minna atvinnuleysi, mjög eðlilegt, og 80 milljarðar í auknar skatttekjur, meiri skattheimta af hinu opinbera en hefur verið hluti af vergri landsframleiðslu. Þetta er stefna um að auka skatttekjur og minnka útgjöld, öfugt við síðasta kjörtímabil þar sem stefnan var að auka útgjöld og minnka skatttekjur. Mér finnst það áhugavert því að það er ekki sagt berum orðum í stefnunni en þegar maður nær að púsla þessu saman þá sýnir þetta, eins og kom fram í grein sem við fengum frá fjárlaganefnd í dag, og það er það sem við erum að greiða atkvæði um, minni útgjöld upp á 120 milljarða og meiri skatttekjur upp á 80 milljarða.