viðspyrnustyrkir.
Frú forseti. Í greinargerð þessa frumvarps, sem við erum vonandi að fara að afgreiða sem allra fyrst eftir talsverðan drátt, kemur m.a. fram að stjórnvöld megi ekki með stuðningi sínum við atvinnulífið aftra tilfærslu framleiðsluþátta milli fyrirtækja og milli greina. Þetta er svona í ágætum takti við greiningar sem hafa verið unnar fyrir Ferðamálastofu, t.d. af KPMG, þar sem lögð er áhersla á að þörf sé á samþjöppun í ferðaþjónustu á næstu árum. Ég vil spyrja hv. þingmann hvort hann sé sammála þessari greiningu, hvort hann telji þörf á því að fyrirtækjum fækki talsvert í ferðaþjónustu og hvort hann telji æskilegt að störfum sé beint annað, hvort það sé í raun það sem liggur að baki þessum orðum í greinargerð frumvarpsins.