152. löggjafarþing — 40. fundur,  23. feb. 2022.

viðspyrnustyrkir.

291. mál
[17:35]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Við ræðum hér úrræði fyrir þær starfsgreinar sem hafa orðið illa úti af völdum Covid. Staðan er þannig að mörg þessara fyrirtækja eru komin að fótum fram og mega engan tíma missa svo að ekki fari illa. Efnahags- og viðskiptanefnd hefur fengið til sín fulltrúa úr hópi þessara fyrirtækja sem lýst hafa stöðunni og beðið um að þingið dragi ekki lappirnar í þessum mikilvægu málum heldur klári þau fljótt og örugglega svo hægt sé að hefja vinnu við að vinna úr umsögnum og greiða út hina langþráðu styrki. Stöðunni er lýst á þá leið að mörg þessara fyrirtækja séu komin að þolmörkum og sjái sér ekki fært að greiða út laun um næstu mánaðamót. Einhver þeirra fyrirtækja eru þessa dagana að segja upp fólki í stað þess að ráða inn fólk til starfa til að mæta þeirri eftirspurn sem fyrir liggur að verður til staðar á komandi sumri. Við getum ekki, virðulegur forseti, látið það gerast að þessir einstaklingar og þessi fyrirtæki sem hafa náð þetta langt við þær erfiðu aðstæður sem faraldurinn hefur skapað lognist út af á síðustu metrunum með tilheyrandi skaða fyrir hlutaðeigandi og samfélögin sem þau tilheyra. Við viljum geta boðið upp á góða þjónustu á öllum sviðum um allt land og til þess að það geti gerst þurfa að vera til staðar aðilar sem veitt geta þá þjónustu sem óskað er eftir. Ég talaði fyrir því í umræðum um fjárlög fyrir árið 2022 að það væri viturlegt að halda áfram viðspyrnustyrkjum í einhverju formi, enda hefur komið á daginn að það var nauðsynlegt. Ég hef því skrifað upp á álit meiri hluta með þessum viðspyrnustyrkjum þar sem ég tel algjörlega nauðsynlegt að þingið klári þetta mál.

Virðulegur forseti. Mér hefur líka borist það til eyrna að frakkaklæddir menn með skjalatösku ríði nú um héruð og bjóðist til að kaupa fyrirtæki af fólki í neyð. Mér finnst að við megum ekki láta slíkt gerast. Það verður að koma í veg fyrir það. Við erum með eldhuga um allt land sem hafa tekið þátt í því að ganga í gegnum búháttabreytingar sem eiga sér stað á landinu okkar þar sem starfsgreinar eins og landbúnaður eru að dragast saman. Þessir aðilar hafa við þröngan kost tekið þátt í mikilvægri nýsköpun við að búa til alls konar þjónustuúrræði um allt land og eiga það skilið af okkur að við látum þá ekki sökkva þegar þeir eru komnir að bryggju.

Ég styð það, virðulegur forseti, að við klárum þetta og hvet til þess að við gerum það eins fljótt og kostur er.