152. löggjafarþing — 41. fundur,  24. feb. 2022.

viðspyrnustyrkir.

291. mál
[13:44]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Virðulegur forseti. Við greiðum hér, ef mér skjátlast ekki — einhver má leiðrétta mig ef ég fer rangt með, en ég held að við séum að greiða atkvæði um þá tillögu okkar að gerð verði breyting á skilgreiningu tekna í lögum um viðspyrnustyrki. Við teljum að þessi breyting sé ósköp einfaldlega í anda þessa frumvarps og anda laga um viðspyrnustyrki og þeirrar hugsunar sem þar birtist, þetta snúist fyrst og fremst um að verja fyrirtæki fyrir samdrætti í sölu á vöru og þjónustu en ekki tekjusamdrætti sem hefur eitthvað með fjármagnshreyfingar og svoleiðis lagað að gera. Þannig að hér erum við einfaldlega að leggja til að girt verði fyrir að fyrirtæki geti sótt sér styrki í ríkissjóð vegna tekjufalls sem hefur með eitthvað allt annað en samdrátt á sölu vöru og þjónustu að gera. Þetta er bara ósköp einföld lagfæring. Ég vona að það verði stuðningur við þetta.