heilsársvegur yfir Öxi.
Frú forseti. Í þessari umræðu er gjarnan vísað til Hvalfjarðargangamódelsins sem sagt er að hafi gengið vel, en það er ekkert óumdeilt hvernig það gekk. Ríkisendurskoðun benti t.d. á að framkvæmdirnar hefðu ekki verið ódýrari en ef ríkið hefði haldið á þeim og kostnaður Spalar vegna innheimtu veggjalda, þann tíma sem það fyrirtæki starfaði, hljóp á 1 milljarði sem lagðist á notendur, bara umsýsla Spalar, og þar að auki voru greiddar 100 millj. kr. í arð út úr Hvalfjarðargangamódelinu.
Svo eigum við náttúrlega annað módel sem er kannski nærtækara, sem er Vaðlaheiðargangamódelið, sem mætti segja að væri frekar víti til varnaðar en hitt þar sem kemur á daginn að þessi PPP-fjármögnun sem er í gangi þar gengur ekki upp. Þannig að ég velti fyrir mér hvort það sé ekki bara betra að við tökum samgönguframkvæmdir (Forseti hringir.) inn í gegnum samgönguáætlun og hendur hins opinbera þannig að það sé forgangsraðað í þágu almennings og samfélagsins en ekki eftir því hvort þær passa í eitthvert ákveðið greiðslumódel.