152. löggjafarþing — 44. fundur,  1. mars 2022.

leigubifreiðaakstur.

369. mál
[14:46]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. samgönguráðherra framsöguna. Það kom mér dálítið á óvart að málið væri nú lagt fram hér um bil óbreytt frá því sem gert var í fyrstu tveimur atrennunum og sérstaklega í ljósi þeirra athugasemda og umsagna sem borist hafa. Og þó að það sé kannski skákað í skjóli heimsfaraldurs átti gríðarlega mikil umræða sér stað innan umhverfis- og samgöngunefndar í tengslum við fyrstu tvær framlagningar þessa máls þannig að það hefði verið til mikilla bóta hefði ráðuneytið tekið þann bolta til sín að mæta með skýrari hætti mörgum af þeim athugasemdum sem fram komu.

En það sem ég vil spyrja hæstv. ráðherra að er hvort hann kunni skýringu á því að í greinargerðinni, þar sem er fjallað um þróun regluverks annars staðar á Norðurlöndum, er í engu fjallað um nýlega þróun mála í Noregi og raunar bara alls ekki neitt um þróun mála þar undir kafla 2.4, Þróun regluverks annars staðar á Norðurlöndum, því að þar eru menn að snúa til baka á harðahlaupum.