152. löggjafarþing — 45. fundur, 2. mars 2022.
um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Ég tek undir með þeim sem á undan hafa komið. Ég kom hingað upp síðast líka. Ég held að þetta sé bara því að kenna að skammtímaminni ríkisstjórnarinnar er svona lítið, það er svo stutt síðan þetta var síðast. En kannski er aðalatriðið það að á sama tíma og ráðherrum hefur fjölgað þá fækkar þeim sem vilja koma. Þarf ekki bara að fækka ráðherrum og þá koma fleiri ráðherrar aftur?