eignarhald í laxeldi.
Virðulegi forseti. Ég þakka andsvarið. Já, ég held að við þurfum bara að vera stöðugt á vaktinni. Hvort sem við þurfum að breyta umhverfiskröfunum eða auka þær, ég held við þurfum aldrei að minnka þær, en við þurfum stöðugt að vera á vaktinni. Lífríkið er að breytast, tæknin er að breytast og við þurfum að velta því fyrir okkur hvernig við getum nálgast þetta. En ég fór í munnlega fyrirspurn við hæstv. matvælaráðherra í síðustu viku og talaði um gjaldtökuna. Þar talaði ráðherra um að það væri á dagskrá hjá henni að vinna að stefnu í fiskeldinu, hvert við vildum stefna, og taka þá allt inn í myndina. Þá er þetta bara tillaga um að fela matvælaráðherra að skipa starfshóp og þetta gæti þá runnið inn í þá stefnuvinnu. Ég held að það sé mjög mikilvægt að við setjumst niður og skoðum hverju við þurfum að breyta, hvernig við þurfum að laga okkur að þróuninni. Á meðan við erum að vaxa með greininni hljótum við alltaf að þurfa að líta til allra átta í þessum málum og það er mjög mikilvægt. Við megum alls ekki missa sjónar á umhverfisþáttunum eða því hvernig við getum mögulega nýtt okkur þetta til að byggja upp samfélög og eins til að auka tekjur sveitarfélaga og ríkisins.