152. löggjafarþing — 51. fundur,  14. mars 2022.

um fundarstjórn.

[16:30]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Frú forseti. Ég held að ég verði að taka undir með síðasta ræðumanni, hv. þm. Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur, um að biðja hæstv. forseta að koma þinginu nú til aðstoðar. Þetta gegndarlausa virðingarleysi hæstv. ráðherra viðskipta og menningarmála er algjörlega farið að keyra um þverbak hér. Hún talar niður þingmenn trekk í trekk, talar um að fólk sé svekkt, talar um hvernig liðið lætur, hrópar að fólki: „eins ómálefnalegt og það er“, og að ákveðnar hv. þingkonur ráði bara ekkert við sig. Í hvert einasta skipti sem hæstv. ráðherra kemur hingað upp í pontu þá lætur hún með þessum hætti, þá lætur út úr sér að hún hafi bara aldrei séð þingmenn jafn æsta. Hvernig væri að svara bara málefnalega hérna? Þessi framkoma er fyrir neðan allar hellur, virðulegur forseti. Við verðum bara að fá aðstoð. Hæstv. ráðherra gerir þetta trekk í trekk þá sjaldan hún kemur hingað upp.