152. löggjafarþing — 51. fundur,  14. mars 2022.

um fundarstjórn.

[16:36]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Ég vil ítreka upphafsorð mín frá því að ég tók til máls hérna í fyrra sinni og óska eftir orðum frá virðulegum forseta um það hver viðbrögð hennar verða. En mér finnst, eftir að hafa hlustað á þetta, að við séum enn og aftur að verða vitni að því hjá hæstv. ráðherra hver hennar sýn er á það hvernig má fara með valdið. Það birtist í því hvernig hæstv. ráðherra fer með orðið, hver hennar sýn á valdið er. Svona talar ekki hæstv. ráðherra til þingsins eða þingmanna. Ég get ekki vikið þeirri hugsun frá mér, af því við höfum áður séð svona viðhorf birtast hjá hæstv. ráðherra í garð kvenna, sem var reyndar þess eðlis að ríkisstjórnin þurfti að borga sig frá dómsmáli gagnvart konu sem unnið hafði málið í tvígang á hendur henni, hvort hæstv. ráðherra hefði talað með þessum hætti til karlkyns þingmanns. Ég veit það ekki. Ég veit það ekki, en ég get ekki annað en velt þessu fyrir mér og ég ítreka beiðni mína til hæstv. forseta.