152. löggjafarþing — 51. fundur,  14. mars 2022.

um fundarstjórn.

[16:42]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Frú forseti. Já, sýnum hvert öðru virðingu. Við skulum gera það. Hér kom upp hv. þm. Sigmar Guðmundsson og spurði mjög eðlilegra spurninga, spurði út í orð hæstv. ráðherra um ákveðnar aðgerðir til að afla tekna fyrir ríkissjóð, mögulega, ef stjórnarliðar þora og hafa hugrekki til að hjálpa fólkinu í landinu. Þetta er mjög eðlileg spurning af hálfu þingmannsins. Hæstv. ráðherra kom hingað upp og sýndi samþingmönnum, af því að hún er jú líka þingmaður, slíka óvirðingu að hér blöskraði fólki. Hún talar um þetta lið þegar hún er að tala um hv. þingmenn og okkur ber að ávarpa þingmenn með ákveðnum hætti. Hún talar um þingmenn sem þetta lið. Hún talar um (Forseti hringir.) hv. þingmenn sem svekkta, spælda og æsta. Er þetta sú virðing (Forseti hringir.) sem við viljum að hæstv. ráðherrar sýni þingmönnum? Nei, ég held ekki.