152. löggjafarþing — 51. fundur,  14. mars 2022.

um fundarstjórn.

[16:45]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf):

Hæstv. forseti. Í krafti aldurs og fyrri reynslu ætla ég að leyfa mér að segja þetta: Við höfum nú eflaust margt betra við tímann að gera en að halda áfram á þessum nótum og ég minni á að það er kannski eitthvað í því sem ráðherrann er búinn að vera að segja að undanförnu sem rímar furðuvel við áherslur okkar í minni hlutanum. Hún vill hækka bankaskatt eða framlag bankanna, hún vill hækka gjald sjávarútvegsins og við ættum kannski að reyna að finna leið fyrir þau sjónarmið áfram þó að þau kunni að vera erfið í meðförum ríkisstjórnarinnar því að það rímar ekki við stjórnarsáttmálann. Sjáið hvernig liðið lætur, er lína sem gefur sitthvað til kynna. En hér er söfnuður hreint ágætur. Höldum áfram að vinna.