um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Þetta er áhugaverð umræða sem hér á sér stað og ég velti því fyrir mér hvort það að láta út úr sér þessi orð um svokallaðan ofurhagnað banka, sýni skilning þess sem á að sjá um viðskipti, viðskiptaráðherra sjálfs, hvort hún skilji hvernig þessi ofurhagnaður bankana núna var til kominn. Við skulum bara rifja það upp. Í fyrra var hagnaður af bönkum sáralítill vegna þess að þeir töldu að þeir myndu tapa talsvert af útlánum. Það gerist núna að það er leiðrétt. Þetta er endurmat á virði útlána sem gerir það að verkum að bankarnir hagnast með þessum hætti. Ég spyr: Áttar þessi viðskiptaráðherra sig ekki á því? Er það óraunverulegt að fyrirtæki skili 7–8% hagnaði á eigin fé, ef við tökum saman tvö síðustu ár? Ég er ekki viss um að viðskiptaráðherrann hafi gert sér grein fyrir þessu og hafi bara verið rekin heim með þetta.