um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Ég vil taka undir eiginlega allt það sem hér hefur komið fram nema kannski það sem kom fram í máli hv. þm. Ingibjargar Isaksen. Enn á Alþingi eftir að afgreiða mjög mikilvæg mál sem varða síðustu kjarasamninga. Þann 31. janúar átti að vera komið inn í þingið frumvarp um réttarbætur fyrir leigjendur, um húsaleigulög, um breytingar á þeim ákvæðum. Ég held að það sé mjög mikilvægt áður en kjaraviðræðurnar fara á fullt að stjórnvöld og við hér á Alþingi sýnum að við séum trúverðugir viðsemjendur, að við sýnum verkalýðshreyfingunni það. Þess vegna finnst mér eðlileg krafa að forseti, í samráði við ráðherra ríkisstjórnarinnar, geri Alþingi viðvart um það ef til stendur að halda áfram að svíkja þessi loforð sem gefin voru við undirritun lífskjarasamninga, vegna þess að þá verða óbreyttir þingmenn hér að taka það upp sjálfir að leggja fram slík mál til þess að þau geti fengið almennilega umfjöllun hérna í þinginu. Það getur ekki orðið aftur þannig að þetta mál sé lagt fram tveimur, þremur dögum fyrir þinglok.