kosningalög og starfsemi stjórnmálasamtaka.
Forseti. Það var ekkert rosalega gaman að sjá fréttirnar í dag um niðurstöðu málsins í Norðvesturkjördæmi og sérstaklega ekki þá tilkynningu að það hefði einhvern veginn verið fellt niður á grundvelli nýrra kosningalaga því að ekki væri heimild í þeim til að fylgja eftir þeim ágöllum sem voru á kosningunum í Norðvesturkjördæmi miðað við framkvæmd gömlu laganna. En það segir einmitt í nýjum kosningalögum, í 136. gr., að það varði sektum, nema þyngri refsing liggi við eftir öðrum lögum, ef sveitarstjórn, kjörstjórn, utanfundarkjörstjóri eða embættismaður hagar fyrirskipaðri framkvæmd laga þessara vísvitandi á ólöglegan hátt eða vanrækir hana.
Í 99. gr. segir að ráðherra setji reglugerð að fenginni tillögu landskjörstjórnar um framkvæmd talningar við almennar kosningar, meðferð ágreiningsseðla, meðhöndlun kjörgagna og kjörskráa og um frágang að lokinni talningu. Þetta er allt þarna en lögreglustjórinn þarna fyrir vestan er greinilega farinn að túlka ný kosningalög á þann hátt að þetta eigi einhvern veginn ekki við um það sem gerðist í (Forseti hringir.) Norðvesturkjördæmi í síðustu kosningum, sem mér finnst vera mjög undarlegt. (Forseti hringir.) Þá er alveg þess vert að við kippum málinu inn í nefnd og gerum þetta aðeins skýrara. Mér finnst þetta nægilega skýrt en (Forseti hringir.) ef framkvæmdarvaldið er farið að túlka þetta á þann hátt að það sé bara hægt að sneiða fram hjá þessu rugli sem var þarna síðast þá er það mjög alvarlegt.