152. löggjafarþing — 54. fundur,  22. mars 2022.

störf þingsins.

[14:00]
Horfa

Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Í febrúar síðastliðnum voru 10.211 einstaklingar í atvinnuleit. Atvinnuleysi var mest á Suðurnesjum eða 9,2%, um 5% á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. Vinnuveitendur hafa nefnt að misjafnlega gengur að ráða í auglýst störf af ýmsum ástæðum en ég tel að við getum gert betur og haft áhrif á það með því að hugsa út fyrir kassann. Í gegnum átakið Hefjum störf þróaðist nýtt verklag í Reykjanesbæ þar sem ráðinn var atvinnumiðlari sem á örfáum mánuðum aðstoðaði yfir 100 manns við að komast í vinnu. Atvinnumiðlarinn hafði frumkvæði að samvinnu við Vinnumálastofnun og atvinnulíf á svæðinu, hringdi í fólk, tengdi það við vinnustaði, út frá samtali um áhugasvið og hæfni, og fylgdi því eftir í vinnu þar sem mótframlag ríkisins fylgdi í ákveðinn tíma. Auk þess voru á annan tug einstaklinga sem komust í starfsendurhæfingu hjá VIRK og því á réttan stað í kerfinu. Með því að innleiða samvinnuverklag líkt og þetta og gera það að almennu verklagi munum við skapa umhverfi sem fjölga tækifærum til atvinnuþátttöku og virkni, en virkni hefur gríðarleg áhrif á vellíðan svo það er til mikils að vinna. Við getum gert enn betur og ég velti fyrir mér hvort þau viðspyrnuúrræði sem stóðu til boða í heimsfaraldrinum hafi verið skammtímalausn eða hvort þau voru í raun dulbúin tækifæri til innleiðingar á breyttu verklagi til framtíðar eins og þetta verkefni sýnir.

Virðulegi forseti. Ég vil hvetja hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra til að kynna sér verklagið sem nefnt hefur verið hér og velta því upp, m.a. með forstjóra Vinnumálastofnunar, hvort tækifæri séu til að efla slíka samvinnu til framtíðar samfélaginu til góða.