heilbrigðisþjónusta.
Forseti. Já, ég styð alfarið það sem hv. þingmaður sagði, fulltrúar starfsmanna eiga svo sannarlega að vera með fullan atkvæðisrétt og vera eins og aðrir stjórnarmenn, vegna þess að ég tel að það sé mjög mikilvægt að rödd fólksins, ekki bara starfsmanna heldur líka notenda, heyrist í stjórn. Það væri mjög framsýnt ef þrír af þessum sjö fulltrúum væru fulltrúar starfsfólks og notenda. Það væri virkilega framsýnt. En hér erum við að tala um þjóðarsjúkrahúsið. Og ég er sammála því að ef um stofnanir úti á landi væri að ræða þá ættu íbúarnir í kring eða fulltrúar þeirra hafa eitthvað með málið að segja en það er erfitt að segja hver á að velja þessa aðila. Þar verðum við, miðað við þetta frumvarp, að treysta því að hæstv. heilbrigðisráðherra hverju sinni sé framsýnn, sé tilbúinn að skipa fólk miðað við þekkingu og reynslu, og ekki bara af því að það er í þessu tilfelli Framsóknarfólk, og vita að það hvaða flokk við kjósum á ekki að skipta máli þegar kemur að því að byggja upp heilbrigðiskerfi til góðs, til framtíðar.