heilbrigðisþjónusta.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Mig langar að geta þess að á nokkrum Norðurlandanna og í sumum löndum þá eru lög um það að öll fyrirtæki með yfir ákveðinn fjölda starfsmanna þurfi að hafa fulltrúa starfsmanna í stjórn. Við getum kannski lært eitthvað af því og rætt t.d. við vinnumarkaðsráðherra um það. En það hefur verið svolítið hoggið í það að í 1. gr. stendur:
„Í stjórn skulu sitja einstaklingar sem hafa þekkingu á rekstri og áætlanagerð, á heilbrigðisþjónustu og vísindarannsóknum á heilbrigðissviði og menntun heilbrigðisstétta og á opinberri stjórnsýslu og reglum stjórnsýsluréttar.“
Ég ætla rétt að vona að þarna sé ekki verið að ætlast til að allir stjórnarmennirnir séu með alla þessa þekkingu. Það er örugglega bara einn eða tveir Framsóknarmenn með hana. Ég hef alla vega reynslu af því í þeim stjórnum sem ég hef setið og í þeim samtökum sem ég hef unnið með að í stjórnina er valið fólk með mismunandi þekkingu, allt eftir því hver þörfin er hverju sinni. Þannig mætti t.d. hugsa sér að núna meðan enn er verið að byggja nýjan spítala þá sitji einhverjir í stjórn sem hafi einhvern tíma byggt eitthvað, byggt spítala einhvers staðar, eða núna þegar þarf að taka á bráðalækningum þá sé einhver í stjórn sem hafi þá þekkingu. Mín spurning er: Er þetta kannski of takmarkandi listi af því að það lítur út eins og einn einstaklingur þurfi að vera með þetta allt saman? Við ættum frekar að segja að það ætti að vera einn með rekstrarþekkingu, einn með þessa þekkingu, annar með aðra. Hvað finnst hv. þingmanni um það?