152. löggjafarþing — 54. fundur,  22. mars 2022.

heilbrigðisþjónusta.

433. mál
[18:19]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mig langar að byrja á að þakka hæstv. ráðherra, Willum Þór Þórssyni, fyrir samantektina, sem var mjög góð, hann gerði það virkilega vel að reyna að taka saman alla þessa punkta frá í dag. Ég hef bara eina spurningu af því að hann kom inn á að það væri kannski ekki ráð að fulltrúi starfsmanna hefði atkvæðisrétt, svolítið eins og verið væri að vernda þá með því að veita þeim ekki atkvæðisrétt, að það væri erfitt fyrir þann fulltrúa að hafa atkvæðisrétt. Ég set ákveðið spurningarmerki við það og finnst rétt að rætt verði við starfsmenn og fulltrúa þeirra, hvort þetta sé rétt ályktun eða rétt niðurstaða, alla vega alls ekki að gefa sér það fyrir fram að það verði eitthvert vandamál fyrir fulltrúa starfsmanna að vera með atkvæðisrétt. Ég átta mig ekki alveg á því hvernig starfsmenn myndu upplifa þetta, hvort það yrði bara stórmál og kannski mjög mikil átök sem þessi fulltrúi starfsmanna myndi lenda í fyrir að vera með atkvæðisréttinn. Þannig að ég myndi óska eftir því, áður en sú ályktun er dregin að það sé ekki gott að starfsmenn hafi atkvæðarétt, að eiga það samtal við þá og taka virkilega púlsinn á nákvæmlega þessu með því að setjast niður með fulltrúum starfsmanna og átta sig á þessu beint með þeim.