152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

fjármál Reykjavíkurborgar.

[10:51]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir. Það kemur beinlínis fram í bréfaskriftum ESA til stjórnvalda, ekki Reykjavíkurborgar, að eignir sem notaðar eru undir félagslegt húsnæði, sem einnig skapar tekjur þrátt fyrir að leiga sé undir markaðsvirði, séu taldar dæmi um eignir sem falli utan skilgreininga á fjárfestingareign og fram komi að slíkar eignir skuli vera bókfærðar í samræmi við eignir sem eru metnar á kostnaðarverði. Þá ætla ég bara að biðja hæstv. ráðherra að hlutast til um það að athuga hvort eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga sé í stakk búin að takast á við þetta verkefni vegna þess að þetta er algert risamál. Það eru endurskoðendur sem hafa meiri reynslu á reikningsskilum heldur en sá sem hér stendur og hæstv. ráðherra samanlagt, sem halda því fram að fjármál Reykjavíkurborgar séu ósjálfbær. Því spyr ég: Hefur eitthvað verið skoðað hvaða áhrif slík staða hefði á Jöfnunarsjóð sveitarfélaga?