152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

lengd þingfundar.

[11:27]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Mig langar til að beina þeirri spurningu til hæstv. forseta hvað það er akkúrat sem kallar á þennan lengda fund í dag. Nú er ég sérstakur áhugamaður um langa fundi, jafnvel næturfundi, það getur verið hin mesta skemmtun að sinna þeim, en þeir eru því marki brenndir að fulltrúar stjórnarflokkanna taka engan þátt í umræðum. Ég ætla hér með að spá því að það verði fátt um fína drætti hvað ræður stjórnarliða varðar þegar líða tekur á þingdaginn í dag.

Mér þykir það skipta máli, hæstv. forseti, að við vitum hvað það er sem kallar á þennan lengda þingfund í dag. Eins og fram kom í máli hv. þm. Helgu Völu Helgadóttur hér áðan þá var gert ráð fyrir að gærdagurinn og dagurinn í dag væru nefndadagar og þingmenn því mögulega margir búnir að gera ráðstafanir sem gengu út á að hægt væri að ráðstafa tíma eftir að áður tilkynntum nefndafundum væri lokið.

Ég vil biðja hæstv. forseta að útskýra fyrir okkur þingheimi hvað það er sem kallar á þetta, vegna þess að ef það er fyrst og fremst slæleg nýting ríkisstjórnarflokkanna á undanförnum vikum þá er bara fínt að það komi fram. Ég skil þessa spurningu eftir hjá hæstv. forseta.