152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

lengd þingfundar.

[11:29]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Í ljósi svara hæstv. forseta finnst mér einmitt ánægjulegt að sjá viðveru þingmanna stjórnarliðsmegin hér. Ég held að ég hafi ekki séð mörg þessara andlita síðastliðnar vikur þannig að eftirspurnin er ekki það mikil, hæstv. forseti. Það vantar meira en helming allra radda í þingsalnum hér og því varla svo hræðilegt að þingmenn stjórnarandstöðunnar tjái sig, bara eftir þingsköpum, í 1. umr. sem er nú ekki þannig að hún sé takmarkalaus auðlind. Það væri auðvitað óskandi, ef hæstv. forseti ætlar sér að lengja hér þingfund, að hann myndi kannski minna hv. stjórnarþingmenn á að þetta er líka þeirra málstofa og það væri ágætt að heyra hvað þeim finnst um öll þessi stjórnarmál sem við eigum að sporðrenna hér fram á nótt. Eftirspurnin er ekki meiri en svo að það vantar rúmlega hálft þingið í umræður þingsins. Það getur varla talist tilefni til að lengja þingfund.