152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

lengd þingfundar.

[11:31]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Já, ég ætla að lýsa yfir furðu minni á því að við skulum vera komin í þessa stöðu. Ég hefði haldið að þegar forseti fer með skýrum hætti að velta því fyrir sér hvernig þingstörfin fram undan eigi að vera, þar sem við erum að taka hvert málið á fætur öðru inn til 1. umr., að hann myndi byrja á réttum enda og benda stjórnarþingmönnum á að hér er verið að ræða mál. En þeir taka ekki þátt í umræðunni. Það er partur af hlutverki okkar sem löggjafa að takast á um skoðanir og rök, ekki bara í nefndum þegar meiri hlutanum hentar heldur líka hér við 1. umr. Það er það sem minni hlutinn hefur verið að gera, eða stjórnarandstaðan, og farið samviskusamlega í gegnum þetta. Mér finnst því sem hæstv. forseti sé aldeilis að byrja á vitlausum enda, sérstaklega hér á þessum degi þar sem upphaflega átti að vera fundur fyrir þingnefndir en var breytt í þingfund. Að hafa þann fund síðan lengri skýtur eiginlega mjög skökku við, svo að ekki sé fastar að orði kveðið.